Uppgjör Maríu Ólafs: „Þeir sem drulla, flott drullið bara yfir mig eða atriðið, mér er sama“

María Ólafs þakkar fyrir stuðninginn og segist ætla að njóta það sem eftir er ferðarinnar í færslu sem hún setti inn á Facebook rétt í þessu. Lagið Shake it Off með Taylor Swift fylgir færslunni.

„Fyrir örfáum mánuðum var ég óþekkt stelpa úr Mosfellsbænum sem átti mér drauma en var of feimin til að framkvæma þá,“ segir hún.

Í kvöld stóð ég upp á stærsta sviði fyrir framan milljónir manna og söng af mér rassgatið fyrir hönd Íslendinga. Þetta er eitthvað sem flestir gera á nokkrum árum, ég tók þetta á spretti.

Auglýsing

Hún segist eflaust hafa geta gert betur.

„EN ég labba sátt í burtu frá keppni ég gerði mitt besta þessar 3 mínútur og meira get ég ekki gert,“ segir hún.

„Þeir sem drulla, flott drullið bara yfir mig eða atriðið, mér er sama því ég veit að margir hefðu aldrei geta gert þetta sem ég gerði án alls hroka.“

Loks segir hún að ferillinn sé bara að hefjast. „Þetta er bara byrjunin og engin smá byrjun. Nú er allt uppávið. Er komin í þennan bransa til að vera.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing