Útsvarið og Gettu betur renna saman

RÚV sýnir í júní spurningaþátt þar sem sigurliðunum úr Útsvari og Gettu betur verður att saman í einhverskonar blöndu af báðum þáttum. Þetta kemur fram í Fréttatímanum í dag.

Sjá einnig: Sjö bestu augnablik TilfinningaTómasar í úrslitum Gettu betur

Auglýsing

Sigurlið MR úr Gettu betur mætir sigurliði Reykjavíkur sem hefur unnið Útvarið tvö ár í röð en þátturinn er verður á dagskrá RÚV 26. júní næstkomandi og er aðeins einn þáttur fyrirhugaður.

Björn Bragi Arnarsson og Þóra Arnórsdóttir sjá um þáttinn en Stefán Pálsson semur spurningarnar og Sveinn Guðmarsson verður dómari.

Sjá einnig: Hvað gekk á í Útsvarinu? Sigmar Guðmunds gat ekki hætt að hlæja

Þættirnir tveir blandast saman á ýmsan hátt Gettu betur lið MR þarf til dæmis að fara í leikþrautina á meðan Útsvarslið Reykjavíkur svarar hraðaspurningum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing