Vaknaði með „frænkur á pungnum“ á heilanum eftir aðgerð

Myndband sem sýnir Nökkva Dan Elliðason vakna eftir hnéaðgerð fer eins og eldur í sinu um netheima. Nökkvi Dan er sonur Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Vestamannaeyjum, en hann tók einmitt myndbandið upp.

Myndbandið er mjög fyndið og Elliði segir í samtali við Vísi að sonur sinn sé um það bil alltaf svona fyndinn:

Maður bjóst við þig að þetta yrði fyndið, að heyra hann vakna eftir svæfinguna. Hann er mikill frasamaður eins og heyra má og hann kastaði þeim þarna fram eins og ekkert væri. Frasar eins og „frænkur á pungnum.“ Þarna vöru mörkin auðvitað aðeins lægri vegna svæfingar og því var við því að búast að þetta yrði mjög fyndið.

Nökkvi Dan segir í samtali við Vísi að viðbrögðin hafi verið meiri en hann bjóst við. Og viðbrögðin eru allskonar:

Það eru komin einhver fleiri „like“ á prófílmyndina og nokkur „poke“. Ætli það megi ekki segja að það séu í rauninni frænkur á pungnum núna.

Myndbandið fyndna má sjá hér fyrir neðan:

Auglýsing

læk

Instagram