Vann vondulagakeppni Harmageddon sólarhring eftir að fyrsta lagið kom út

Markaðs- og viðskiptafræðingurinn Björn Þór Ingason sendi frá sér lagið It Goes Something Like This á dögunum. Hægt er að hlusta á lagið hér fyrir neðan.

Minna en sólarhring eftir að lagið kom út var það búið að vinna hina alræmdu vondulagakeppni í Harmageddon, útvarpsþætti Frosta Logasonar og Mána Péturssonar, á X977.

Auglýsing

Björn Þór tók sigrinum vel og segir hann kærkominn. „Ég er menntaður markaðsfræðingur og upp að vissu marki er allt umtal gott umtal svo ég fagna þessu bara,“ segir hann léttur.

Friðrik Dór félagi minn og fyrrverandi skólabróðir fór nú ekkert sérstaklega illa út úr þessu þegar að hans fyrsta lag, Hlið við hlið, vann þessa keppni fyrir nokkrum árum. Þannig að vonandi boðar þetta bara gott. Máni hefur sjálfur haft orð á því að þessi keppni geti verið stökkpallur fyrir tónlistarmenn.

Spurður hvort hann vilji segja eitthvað við Frosta og Mána segist hann vilja þakka þeim fyrir að hjálpa sér að koma tónlistinni á framfæri.

„Það er ekki á hverju degi sem svona lag heyrist á Xinu. Auðvitað er þetta lag ekki fyrir alla og ég var ég mjög meðvitaður um það en það er bara allt í góðu.“

Eins og margir aðrir tónlistarmenn var Björn Þór í Verzló og tók þar þátt í þremur uppfærslum af söngleikjum sem ásamt því að taka þátt í söngvakeppni og tónsmíðakeppni með góðum árangri.

„Planið var alltaf að gefa tónlistinni séns eftir að ég kláraði viðskiptafræðina en árið var 2009 og ekki mikið að gerast hér á landi í kjöflar hrunsins,“ segir hann.

„Ég fór því til Kaupmannahafnar í enn meira nám og kláraði meistarapróf í markaðsfræði frá Copenahagen Business School. Ég hafði allan þennan tíma og hef í raun alveg síðan ég var 13 verið að semja tónlist og flytja við ýmis tækifæri.

Stefnan var alltaf að gefa hluta af efninu út. Nú er komið að því að maður láti á það reyna og vonandi fellur það vel í kramið.“

https://www.youtube.com/watch?v=Xf3kErkui14

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing