Veitingastaðurinn Le Bistro á Laugavegi býður nú fólki að koma með sitt eigið vín og drekka á staðnum. Staðurinn rukkar 2.900 krónur í svokallað tappagjald fyrir þjónustuna.
Arnór Stefán Bohic á Le Bistro segir þjónustuna þekkjast víða erlendis þó hún sé vissulega svolítið sérstök. „Svo er voðalega mismunandi hvað fólki finnst um þetta,“ segir hann.
Hann gantast með að þjónustan henti kannski helst hálfgerðum vínnördum sem eiga góða flösku heima sem þeir vilja drekka á veitingastað með vinum.
Þetta getur verið spennandi fyrir fólk sem á sérstaka flösku og vill taka hana með og njóta hjá okkur.
Hann bætir þó við að staðurinn býður einnig upp á gott úrval af vínum.