Íslenska fyrirtækið Vélfag sem sætir viðskiptaþvingunum vegna erlends móðurfélags þess hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu í Reykjavík. Gera má ráð fyrir frekari málshöfðunum bæði á Íslandi og í Lúxemborg (EFTA og EES) að því er fram kemur í fréttatilkynningu á vef fyrirtækisins. Vélfag er í dag skráð í 81% eigu Ivan Nicolai Kaufmann, bankamanns og fjármálaráðgjafa frá Liechtenstein sem býr í Sviss, og restina eiga svo íslenskir stofnendur fyrirtækisins sem hafa rekið félagið í um 32 ár.
Á föstudaginn gaf Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ráðherra, út nýja ákvörðun í málinu sem hefur staðið yfir síðan í júlí mánuði þar sem segir að Vélfag verði sent í gjaldþrot innan fjögurra vikna nema félagið leggi fram „afgerandi gögn eða upplýsingar“. Aðstandendur Vélfags segja að ráðuneytið hafi hins vegar ekki tilgreint hvaða gagna sé krafist. Á sama tíma var undanþáguramminn þrengdur enn frekar sem setur frekari hindranir á rekstur félagsins.
Víðtækar afleiðingar fyrir greinina í heild
Ákvörðunin stendur í beinni mótsögn við fyrri yfirlýsingu ráðherrans um að Vélfag sé „strategískt mikilvægt fyrir íslenskan sjávarútveg.“ Í dag eru 84% af íslenskum frystitogurum búnir vélum frá Vélfagi, og tækni félagsins er einnig í notkun í sumum af öflugustu landvinnslum Íslands. Afleiðingar nauðungarlokunar væru alvarlegar fyrir greinina í heild, þar sem yfir 20 störf á Akureyri væru í húfi og grundvallarstarfsemi íslensks sjávarútvegs væri raskað.
Fulltrúar greinarinnar óttast að þessar aðgerðir séu ekki afleiðingar einfaldrar stjórnsýslulegrar vanrækslu heldur virðist hér vera um að ræða markvísa – og ólögmæta – tilraun til að brjóta niður að öllu leyti heilbrigt íslenskt fyrirtæki. Slíkar aðgerðir gætu leitt til umfangsmikilla málaferla vegna skaðabóta gegn íslenska ríkinu, sem að lokum myndi lenda á skattgreiðendum, segir í tilkynningu frá félaginu.
Eigendur ekki á neinum þvingunarlistum ESB
Árétta ber að hvorki Vitaly Orlov, Nikita Orlov né núverandi meirihlutaeigandi Ivan Kaufmann hafa nokkru sinni verið á neinum þvingunarlistum Evrópusambandsins. Aðstandendur Vélfags fullyrða einnig að engin tenging sé milli Ivan Kaufmann og Norebo.
Fyrir hvern á að koma Vélfagi í þrot?
Löggjöf Evrópusambandsins um viðurlög er skýr í þessu samhengi: Íslandi hefur hvorki
verið falið né hefur rétt til að setja Vélfag eða hluthafa þess á neins konar þvingunarlista. Ljóst þykir að evrópskur dómstóll muni taka skýra ákvörðun í þessu máli.
Ivan Kaufmann sagði í stuttu spjalli við Nútímann að aðgerðirnar sem nú væru reknar væru óhóflegar, byggðar á veikum lagagrundvelli og vektu alvarlegar spurningar. Hann spyr: „Fyrir hvern starfa Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Arion banki þegar þau ryðja brautina fyrir gjaldþrot Vélfags?“