• Fréttir
    • Fólk
    • Pólitík
    • Útlönd
  • Myndbönd
    • Nútímafólk
    • Nútíminn
    • Grín
    • Namm
  • Matur
  • Alvarpið
    • Dagskrá og leiðbeiningar
    • Popp og fólk
    • Bíó Tvíó
    • Áhugavarpið
    • Eusebio
    • Englaryk
    • Eldri hlaðvörp
      • Sunnudagsleikhúsið
      • Viskíhlaðvarp Majó
      • Virðulegi forseti
      • Þjóðarskútan
      • Spinnipúkinn
      • Fólk er fífl
      • Á trúnó
      • Í kasti með Dr. Gunna
      • Útvarp Flatey
      • Trí ló gík
      • Ástin og leigumarkaðurinn
      • Ólíkindatólið
      • Sultukrukkudómurinn
      • Júpíter
      • Rými
      • Glerslíparinn
      • Cous Cous og föðurlandið
      • Eftir súpuna sérðu liti hafsins
      • Grínistar hringborðsins
      • Hlaðvarpið með Simon.is
      • Finndið
      • Ísland í dag, Satan
  • Örskýringar
  • Raddir
  • Fréttir
    • Fólk
    • Pólitík
    • Útlönd
  • Myndbönd
    • Nútímafólk
    • Nútíminn
    • Grín
    • Namm
  • Matur
  • Alvarpið
    • Dagskrá og leiðbeiningar
    • Popp og fólk
    • Bíó Tvíó
    • Áhugavarpið
    • Eusebio
    • Englaryk
    • Eldri hlaðvörp
      • Sunnudagsleikhúsið
      • Viskíhlaðvarp Majó
      • Virðulegi forseti
      • Þjóðarskútan
      • Spinnipúkinn
      • Fólk er fífl
      • Á trúnó
      • Í kasti með Dr. Gunna
      • Útvarp Flatey
      • Trí ló gík
      • Ástin og leigumarkaðurinn
      • Ólíkindatólið
      • Sultukrukkudómurinn
      • Júpíter
      • Rými
      • Glerslíparinn
      • Cous Cous og föðurlandið
      • Eftir súpuna sérðu liti hafsins
      • Grínistar hringborðsins
      • Hlaðvarpið með Simon.is
      • Finndið
      • Ísland í dag, Satan
  • Örskýringar
  • Raddir
Foreldrar

Innkaupalisti og afar góð ráð frá Ebbu fyrir alla sem stússa í eldhúsinu

Áttu matvanda grislinga? Hér er eitthvað fyrir þig

19 maí, 2016, 23:05 | Kristrún Heiða

Hvernig fær maður krakkana til þess að elda ... og ganga frá eftir sig?


Ebba Guðný veit hvað hún syngur! Við leituðum ráða hjá henni varðandi börn og matvendni og komum svo sannarlega ekki að tómum kofanum. Þessa dagana má sjá Ebbu í eldhúsinu með klárum krökkum sem læra af henni að gera sitt eigið snarl.

Hvert er gagnlegasta ráðið, að þínu mati, fyrir foreldra sem eiga matvönd börn á grunnskólaaldri?

Að leggja sig fram um að hafa það litla sem þau borða af góðum gæðum. Til dæmis ef börn vilja mikið til bara brauð, þá er himinn og haf á milli þess að kaupa samlokubrauð í stórmarkaði eða lífrænt súrdeigsbrauð sem eru gerlaus. Og enn betra heilkorna. Súrdeigsbrauðin fara miklu betur í maga og eru miklu vinveittari fyrir þarmaflóruna okkar af því þau innihalda ekki ger og líka af því að súrinn formeltir kornið, brýtur niður sterkjuna og gerir það miklu auðmeltara fyrir okkur, og þannig öll næringarefni aðgengilegri fyrir líkamann. Sama með pasta, ef börn elska pasta, kaupa heilkorna pasta (lífrænt) og setja fullt af ólífuolíu út á pastað. Hún er mettandi og nærandi, smyrjandi fyrir hægðir og liði, bólgueyðandi og sérlega góð fyrir meltinguna. Svona góð fita temprar blóðsykurinn og slær á sætuþörf og ofát.

Einnig er snjallt að hafa sameiginlega matmálstíma á kvöldin eða morgnana (bæði ef hægt) þar sem útbúinn er matur frá grunni (samt ekki flókinn!) úr góðu hráefni sem börnum líkar. Og þar er hægt að ræða lífið og tilveruna, leiðbeina og kenna, hlæja og hafa gaman. En einnig gefst þar tími til að ræða hvað það skiptir miklu máli að borða næringarríkan mat. Því þá hefur maður meiri orku til góðra verka. Matur er bensínið okkar. Ef maður borðar næringarsnauðar eftirlíkingar af mat, endar það í orkuleysi og jafnvel þunglyndi. Gera þau meðvituð. Einnig að kenna þeim að drekka bara vatn, ekki kaupa djús og ekki gos. Vatn er besti, ódýrasti og fallegasti drykkurinn. Þegar maður drekkur vatn lítur maður betur út, hefur meira úthald og líður betur að öllu leyti.


En hvernig fær maður krakka til þess að vera snyrtilegir kokkar, en ekki subbukokkar – sem skilja eldhúsið eftir í rúst?

Ekki nöldra. Best að ræða við þau, þegar maður er ekki pirraður, um að ganga frá jafnóðum eftir sig. Útskýra að það er ekki sanngjarnt að einhver einn á heimilinu gangi frá eftir hina. Langbest og sanngjarnast er að hver og einn gangi frá eftir sig (þegar þau fara að eldast). Minna þau á fyrst á meðan þau eru að venjast (ekki í nöldurtón). En auðvitað er alltaf einhver einn yfirmaður sem þarf að taka meira á sig en hinir (það er ég heima hjá mér). En hinir eiga allir að koma til móts við hann og taka mestmegnis af sínu sjálfir.


Hefur þú alltaf getað borðað það sem börnin þín elda?

Já, svei mér þá, það held ég bara! 🙂  .. Þau eru mest í vöfflunum (í kaffinu), pítsunni (á föstudögum) og stundum kökum (Hanna, þegar hún er í stuði). Þetta er allt svo ljómandi gott 🙂


Er fólk nokkuð feimið við að bjóða þér í mat?

Jú, ég held að mjög margir haldi að ég sé miklu meiri snillingur í eldhúsinu en ég er!


Viltu deila með okkur einum innkaupalista? Margir foreldrar lenda í því að fara á autopilot út í búð og kaupa alltaf það sama. Hvað er í þinni körfu?

Já, ekkert mál. Hér er einn dæmigerður innkaupalisti – margt þarna kaupi ég samt sjaldan því að endist svo vel.

Súraldin og sítrónur, nóg af þeim
Gulrótasafi og/eða rauðrófusafi (lífrænir)
Lífræn epli
Gulrætur, íslenskar
Laukur og blaðlaukur
Lárperur
Mangó
Bananar
Gúrka
Sætar kartöflur
Brokkolí
Klettasalat, íslenskt
Steinselja
Isola möndlumjólk
Hörfræolía
Grísk lífræn jógúrt
Lífræn AB jógúrt (nota hana í brauðbakstur og vöfflur mikið á móti heitu vatni)
Rjómi
Smjör
Sýrður rjómi frá Mjólku
Mozzarella rifinn og heill
Spelt frá Himneskri Hollustu
Tómatpúrra frá HH
Hafrar frá HH
Döðlur frá HH
Möndlur frá HH
Lífræn tómatsósa (nota á pítsuna á föstudögum á móti tómatpúrru)
Hampfræ og önnur fræ eftir þörfum
Linsubaunir, rauðar og brúnar eða puy
Chiafræ
Dökkt lífrænt súkkulaði
Kókosmjólk, aukaefnalaus
Glúteinlaust quinoahrökkbrauð (Le Pain des Fleurs)

 

 

  • Facebook
  • Twitter




Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa:

Nýr kebab staður opnar á Akureyri

Margrét Erla Maack og Tómas Steindórsson eignuðust stúlku

Ný íslensk heimildamynd um íslenska matarhefð og sögu verður frumsýnd í Bíó Paradís





Þormóður er rísandi stjarna í heimi íslenskrar og alþjóðlegrar dægurtónlistar

Sjáðu Haffa Haff og Sophie dansa Cha Cha Cha!

Öll bestu og skemmtilegustu tíst vikunnar:„Við kærastan ætluðum að gera fínt en lögðum óvart bölvun á jólin“

Jón Gnarr stýrir hlaðvarpsþætti um smáauglýsingar Bændablaðsins

Heimalöguð tómatsúpa með ristuðum tómötum og basil

Aron Einar og Kristbjörg stofna húðvörufyrirtæki

Steinunn Ólína sækir um stöðu útvarpsstjóra:„Hef bókstaflega engu að tapa“

Berglind kannaði starfsumhverfi jólasveinanna

Valdimar frumflutti jólalagið Ég þarf enga gjöf í ár

Einar syndir í tvo sólarhringa

Ný íslensk spennuþáttaröð á annan í jólum

Rúrik hannaði bol fyrir 66°Norður

  • MEST LESIÐ

    • Öll bestu og skemmtilegustu tíst vikunnar:„Við kærastan ætluðum að gera fínt en ...
    • Steinunn Ólína sækir um stöðu útvarpsstjóra:„Hef bókstaflega engu að tapa“
    • Rúrik hannaði bol fyrir 66°Norður
    • Einar syndir í tvo sólarhringa
    • Eina íslenska roller derby-liðið mætti þýsku liði í mögnuðum leik, sjáðu myndbandið
  • VIKAN

    • 18 bestu og skemmtilegustu tíst vikunnar:„Einum vöðvahnút frá því að láta lífið“
    • Öll bestu og skemmtilegustu tíst vikunnar:„Við kærastan ætluðum að gera fínt en lögðum óvart bölvun á jólin“
    • „Pabbi rassskellti mig í lögreglubúning“
    • Erna Kristín segir„í kjólinn fyrir jólin“vera algjört kjaftæði
    • Hér eru myndirnar sem slógu í gegn á Instagram um helgina:„Stærra stúdíó, stærri mússík!“

Örskýringar

Örskýring: Að missa svefn yfir þriðja orkupakkanum

Örskýring: Hvers vegna eru Tyrkir brjálaðir út af uppþvottabursta?

Örskýring: Leikmaður í Pepsi Max deild karla gæti verið á leið í bann fyrir rasísk ummæli

Meira

Ekki missa af þessum

Þormóður er rísandi stjarna í heimi íslenskrar og alþjóðlegrar dægurtónlistar

Stjarna Björgvins Halldórssonar fjarlægð

Villa Neto leikur í nýju og bráðskemmtilegu tónlistarmyndbandi SZK

„Ég fattaði ekki að ég væri með búlimíu”

Ed Sheeran á mest spilaða lag áratugarins

Nútíminn

Auglýsingar
Um Nútímann