today-is-a-good-day

Fljótlegur kjúklingaréttur með hvítlauk, chilli og basiliku

Hráefni:

  • 2 msk sesamolía eða ólívuolía
  • 500 gr kjúklingabringur eða úrbeinuð læri, skorið í þunna strimla
  • 1/2 dl hunang
  • 1 msk maíssterkja eða hveiti
  • svartur pipar
  • 1 dl sojasósa
  • 1 msk fiskisósa
  • 1-2 msk sambal oelek (chilli mauk)
  • 2 msk tómatsósa
  • 2 msk sesamfræ
  • 4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 3 cm engifer, rifið niður
  • 2 rauðar paprikur, skornar í strimla
  • 2 dl fersk basilika, skorin gróft niður
  • soðin hrísgrjón

Aðferð:

1. Takið meðalstóra skál og blandið saman kjúkling, maíssterkju og svörtum pipar.

2. Takið aðra skál og blandið saman hunangi, sojasósu, fiskisósu, chilli mauki, tómatsósu og sesamfræjum.

3. Hitið 2 msk olíu á pönnu. Brúnið kjúklinginn vel eða þar til hann verður stökkur. Bætið næst hvítlauk, engifer og papriku á pönnuna og steikið áfram í 2-3 mín. Hellið þá sósunni saman við og náið upp suðu. Leyfið þessu að malla í 5 mín.

4. Takið pönnuna af hitanum og hrærið basiliku saman við. Berið fram strax með hrísgrjónum og toppið með ferskri basiliku.

Auglýsing

læk

Instagram