Blómkálsmús með hvítlaukssmjöri

Hráefni:

  • 1 stór blómkálshaus
  • 4-6 hvítlauksgeirar skornir mjög smátt eða rifnir niður
  • 2 dl kjúklinga eða grænmetissoð
  • 1 líter vatn (meira ef þarf)
  • 2 msk smjör
  • Salt og pipar eftir smekk
  • ferskar kryddjurtir að eigin vali til skrauts

Aðferð:

1. Skerið blómkálið niður í stóran pott með vatni + kjúklingasoði. Setjið helminginn af hvítlauknum í pottinn ásamt salti og pipar. Látið suðuna koma upp, lækkið þá örlítið hitann og leyfið þessu að malla í 15-18 mínútur, eða þar til blómkálið er orðið mjúkt.

2. Sigtið vatnið frá blómkálinu og maukið það með töfrasprota eða í matvinnsluvél ásamt hinum helmingnum af hvítlauknum og smjörinu.

3. Smakkið þetta til með salti og pipar. Setjið í skál og toppið með ferskum jurtum.
Auglýsing

læk

Instagram