Bragðmikil karrý-kókos sjávarréttasúpa

Hráefni:

  • 1 1/2 msk engifer rifið niður
  • 2 msk smjör
  • 1 laukur skorinn smátt
  • 1 stór gulrót skorin smátt
  • 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 1 rauður chilli skorinn smátt
  • 2 msk karrý
  • 1 tsk túrmerik
  • 4 dl fiskisoð eða vatn
  • 1 dós kókosmjólk
  • 1 tómatur skorinn smátt
  • salt
  • 1/2 kíló kræklingur, vel skolaður
  • 100-200 gr risarækjur
  • 2 msk ferskt kóríander
  • 1 msk sítrónusafi
  • naan brauð borið fram með súpunni

Aðferð:

1. Bræðið smjörið í góðum potti. Bætið lauk, gulrótum, hvítlauk, chilli og engifer í pottinn og leyfið þessu að mýkjast á góðum hita í um 5 mín. Bætið næst, karrý og túrmerik saman við og hrærið vel í um 1 mín. Þá fer fiskisoð, kókosmjólk, tómatur saman við og örlítið salt.

2. Leyfið þessu nú að malla í um 15 mín. Bætið krækling og rækjum og látið malla rólega í um 3 mín en þá ættu rækjurnar að hafa eldast í gegn og kræklingurinn allur búinn að opnast. Hendið þeim kræklingum sem hafa ekki opnast. Hrærið kóríander og sítrónusafa út í og smakkið til, bætið við salti eftir smekk. Gott er að bera súpuna fram með naan brauði.

Auglýsing

læk

Instagram