Hinn ekta, alíslenska sjoppu-borgara finnur þú í Drekanum, miðbæjarsjoppunni margfrægu á Njálsgötu
(rauða húsið). Fulltrúar SKE kíktu við hjá strákunum í Drekanum og fengu sér ostborgara-tilboð með
beikoni, frönskum og gosi. Hamborgarinn var virkilega bragðgóður og
franskarnar með kokteilsósu fullkomnuðu þennan sígilda skyndibita sem allir þekkja.
Drekinn er með flottan matseðil af grillinu og
býður upp á gott tilboð með hverjum rétti með viðbættu gosi og frönskum.