today-is-a-good-day

Fljótlegur og ljúffengur Tandoori kjúklingaborgari

Hráefni:

  • 700 gr kjúklingahakk, fæst t.d. í Nettó
  • 4 vorlaukar
  • 3 msk rifið engifer
  • 2 msk sítrónusafi
  • 1 msk paprika
  • 2 tsk Cumin
  • 1/2 tsk malaðar kardimommur
  • 1/4 tsk cayenna pipar
  • salt og pipar eftir smekk
  • gúrka
  • ferskt kóríander
  • rauðlaukur skorinn í þunnar sneiðar
  • naan brauð
  • Jógúrtsósa:
  • 1 lítil dós grískt jógúrt
  • 1 msk fersk söxuð mynta
  • 2 tsk Cumin
  • 1 msk sítrónusafi
  • salt og pipar

Aðferð:

1. Setjið kjúklingahakkið ásamt kryddum í skál og blandið öllu vel saman með höndunum. Mótið næst 4 borgara úr þessu.

2. Blandið öllum hráefnum fyrir jógúrtsósuna saman í skál og leggið til hliðar.

.3. Skerið niður gúrku, rauðlauk og kóríander.

4. Steikið næst (eða grillið) borgarana í um 3 mín á hvorri hlið. Leggið 4 lítil naan brauð með á pönnuna síðustu mínúturnar og leyfið þeim að hitna í gegn.

5. Leggið hvern borgara í naan brauð ásamt gúrku, rauðlauk og vel af kóríander. Toppið þetta með jógúrtsósunni. Einfalt, bragðgott og fljótlegt!

Auglýsing

læk

Instagram