Bakaðar fylltar paprikur með kjúklingi og fetaosti

Hráefni:

  • 1x löng paprika skorin langsum í tvennt
  • 100 gr perlubygg
  • 1x stór kjúklingabringa skorin í litla bita
  • 1 msk balsamik edik
  • 30 gr fetaostur (gott að nota kubb sem er ekki í olíu)
  • olía
  • handfylli fersk söxuð steinselja
  • Salt & Pipar eftir smekk

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 180 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.

2. Sjóðið perlubygg eftir leiðbeiningum á pakkningu, sigtið vatnið frá og byggið til hliðar.

3. Steikið kjúklinginn upp úr olíu. Þegar hann er næstum því eldaður í gegn fer 1 msk af balsamik ediki saman við ásamt salti og pipar. Setjið þá helminginn af steinseljunni saman við og steikið áfram þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.

4. Hreinsið paprikuna að innan og leggið þær á ofnplötuna. Fyllið þær upp að brún með perlubyggi. Toppið þær svo með kjúklingi og myljið fetaostinn yfir. Bakið í ofninum þar til paprikurnar fara að mýkjast og osturinn verður fallega gylltur. Berið fram með fersku salati.

Auglýsing

læk

Instagram