today-is-a-good-day

Ferskt og bragðgott kjúklingasalat með Shawarma-dressingu

Hráefni fyrir kjúklinginn:

  • Safinn úr 2 sítrónum
  • 2 msk ólívuolía
  • 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 1 tsk svartur pipar
  • 2 tsk cumin
  • 2 tsk paprika
  • 1/2 tsk turmerik
  • 1/2 tsk chilli flögur
  • 500 gr kjúklingabringur eða úrbeinuð kjúklingalæri

Salat:

  • 1/2 romaine salat
  • 1/2 iceberg salat
  • fersk steinselja söxuð
  • ferskt mynta söxuð
  • 1 box litlir tómatar skornir til helminga
  • 1/2 gúrka skorin í ræmur
  • 1 lítill rauðlaukur skorinn í þunnar ræmur

Dressing:

  • 1 dl tahini
  • 1/2 – 1 dl vatn
  • 1/2 dl ólívuolía
  • Safinn úr 1 sítrónu
  • sjávarsalt eftir smekk
  • svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

1. Blandið öllu hráefninu fyrir kjúklinginn saman í poka, gott er að nota stóran zip-lock poka ef hann er til. Setjið síðan kjúklinginn í pokann og lokið pokanum. Nuddið öllu vel saman og leyfið þessu að marinerast í ísskáp í nokkra klukkutíma, helst yfir nótt.

2. Þegar kjúklingurinn hefur marinerast er ofninn stilltur á 200 gráður. Leggið bökunarpappír á ofnplötu og raðið kjúklingnum á plötuna. Hellið afgangs marineringu úr pokanum yfir kjúklinginn. Setjið kjúklinginn í ofninn í um 30 mín eða þar til hann er eldaður í gegn. Leggið hann til hliðar og leyfið honum að kólna. Þegar hann hefur kólnað er hann skorinn í 1 cm þykkar sneiðar.

3. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er salatið útbúið. Skerið kálið og fersku jurtirnar niður og setjið í stóra skál ásamt tómötum, gúrku og rauðlauk.

4. Setjið tahini, ólívuolíu, sítrónusafa, salt og pipar í blandara eða töfrasprota og mixið vel ásamt 1/2 dl af vatni, þar til úr verður silkimjúk dressing, Má setja meira vatn ef þarf.

5. Útbúið salat með því að raða salatinu á disk, ásamt kjúklingnum og toppað með dressingunni.

Auglýsing

læk

Instagram