Pastaréttur með risarækjum, sítrónu, chilli og hvítlauk

Hráefni:

½ kíló Linguine pasta (1 pakki)

½ kíló risarækjur

4 matskeiðar smjör

5 matskeiðar rifinn parmesan ostur

1 matskeið kraminn hvítlaukur

2 teskeiðar chiliflögur (eða ferskt chili)

2 matskeiðar söxuð steinselja (má sleppa)

1/2 sítróna – notið safann og börkinn

salt og pipar

Aðferð:

1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka.

2. Steikið rækjurnar á pönnu í 2 mín, bætið síðan chilli, hvítlauk og smjöri á pönnuna. Leyfið þessu að malla í smástund.

3. Bætið síðan rifna parmesanostinum við ásamt sítrónusafanum og rifna sítrónuberkinum. Smá salt og pipar eftir smekk.

4. Allra síðast fer soðna pastað út á pönnuna og blandað vel saman. Skreytið með steinselju og vel af parmesan.

Auglýsing

læk

Instagram