today-is-a-good-day

Stökkir ofnbakaðir kjúklingabitar með sætri-sinneps sósu

Hráefni fyrir kjúklinginn:

  • 500 gr kjúklingabringur skornar í bita
  • 2 dl buttermilk (mjólk + sítrónusafi)
  • 5 dl kornflakes, muldar fínt
  • 2 msk hveiti
  • 2 msk cajun krydd
  • 2 dl cheddar ostur, mjög fínt rifinn niður
  • svartur pipar
  • ólívuolía, til penslunar

Hráefni fyrir hunangs-sinneps sósu:

  • 1/2 dl sýrður rjómi eða hrein grísk jógúrt
  • 1/2 dl dijon sinnep
  • 1/2 dl hunang
  • 2 msk ólívuolía
  • safinn af 1/2 sítrónu
  • 1 msk cajun krydd
  • 1/4 tsk cayenne pipar
  • sjávarsalt og svartur pipar

Aðferð:

1. Setjið kjúklingabitana í poka með sítrónu-mjólkinni, lokið pokanum og hristið vel saman. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.

2. Setjið kornflakes, hveiti, cajun krydd, cheddarost, pipar saman í skál og blandið vel saman.

3. Takið einn kjúklingabita í einu úr pokanum og leggið í kornflakes-blönduna, þrýstið bitanum vel í á öllum hliðum. Leggið kjúklinginn næst á ofnplötuna. Þegar allir bitarnir eru komnir á ofnplötuna þá eru þeir penslaðir létt með ólívuolíu. Bakið þá í um 15-20 mín eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.

4. Á meðan blandið þið öllum hráefnum fyrir sósuna saman og hrærið vel saman. Berið fram strax!

Auglýsing

læk

Instagram