Ofnbakaðir „sticky“ kjúklingabitar

Hráefni:

  • 600 gr kjúklingabringur skornar í strimla
  • 1 dl hveiti
  • ѕаt og pipar
  • 2 egg
  • 2 msk mjólk
  • 5 dl panko rasp
  • 1 dl möndluflögur
  • 1/2 dl ferskt kóríander saxað

Sósan:

  • 1 dl sweet сhіllі ѕósa
  • 1 dl vatn
  • 1/2 púðursykur
  • 1/2 dl sojasósa
  • 2 msk hrísgrjónaedik
  • 2 msk lime safi
  • 1/2 tsk rifinn engifer
  • 1 hvítlauksgeiri rifinn niður
  • 1/4 tsk chilliflogur

Aðferð:

1. Leggið bökunarpappír á ofnplötu og hitið ofninn í 200 gráður.

2. Hrærið egg og mjólk saman í grunnri skál. Setjið 1 dl möndluflögur í matvinnsluvél þar til úr verða fínar mylsnur og hellið í aðra grunna skál. Setjið næst panko rasp í matvinnsluvél í nokkrar sekúndur og hellið í skálina með möndlunum. Kryddið í allar skálarnar með salti og pipar.

3. Veltið einum kjúklingabita í einu upp úr hveiti, næst uppúr hveiti/möndlu blöndunni. Gott er að þrýsta vel á þær svo það festist vel á. Raðið bitunum næst á ofnplötuna. Gott er að pensla bitana með ólíuvolíu áður en þeir fara í ofninn. Bakið þá í um 10 mín, snúið þeim þá við, penslið þá aftur með olíu og bakið áfram í um 7-9 mín eða þar til þeir eru orðnir fallega gylltir.

4. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum þá er sósan útbúin. Setjið öll hráefnin fyrir sósuna í pott og náið upp suðu. Leyfið þessu að malla við vægan hita í um 5-6 mín eða þar til sósan hefur þykknað. Hellið þessu í grunna skál. Dýfið næst kjúklingabitunum ofan í sósuna, gott er að nota töng. Raðið kjúklingnum aftur á ofnplötuna og bakið þá aftur í 4-5 mín. Toppið þá með ferskri steinselju og möndluflögum rétt áður þeir eru bornir fram

Auglýsing

læk

Instagram