Spaghetti með rjómasoðnum camembert og beikoni

Þessi verður að öllum líkindum þinn nýji uppáhalds pastaréttur. Camembert osturinn bræddur við rjómann og svo stökka beikonið, himneskt!

Hráefni fyrir c.a. 4 :

400-500 gr spaghetti

1/2 camembert ostur

8 beikonsneiðar

1 pakki sveppir

1/2 líter rjómi

1 dl parmesan ostur

8 beikonsneiðar

1 msk smjör

salt og pipar

Fersk steinselja (má sleppa)

Aðferð:

1. Pastað soðið eftir leiðbeiningum á umbúðum.

2. Beikonið er steikt mjög vel á pönnu þar til það er orðið vel dökkt og stökkt. Sett til hliðar, þerrað og skorið í litla bita.

3. Skerið sveppina í grófa bita og steikið upp úr smjöri á pönnu.

4. Camembert osturinn er skorinn í sneiðar og honum bætt við á pönnuna ásamt parmesan ostinum og rjómanum. 

 5. Þetta er látið malla saman í nokkrar mínútur og smakkað til með salti og pipar.

6. Pastað er síðast sett saman við á pönnuna og borið strax fram. Toppað með beikoni, vel af parmesan og steinselju.

Auglýsing

læk

Instagram