Spicy rækju-tacos með hvítlauk, kóríander og lime

Hráefni í sósuna:

  • 1/2 dl ólívuolía
  • 1/2 dl vatn
  • 1 dl saxaður vorlaukur
  • 1 dl saxað kóríander
  • 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 1/2 tsk salt
  • safinn úr 2 stk lime
  • 1 1/2 dl sýrður rjómi eða grískt jógúrt

Kryddblanda:

  • 2 tsk chilli krydd 
  • 2 tsk cumin
  • 1/2 tsk hvítlaukskrydd 
  • 1 tsk sjávarsalt

Annað:

  • 1/2 kg risarækjur
  • 6 dl hvítkál saxað niður
  • 8 litlar tortillur
  • avocado, 1/2 feta-kubbur og limesneiðar

Aðferð:

1. Blandið hráefninu í sósuna saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Setjið um það bil helminginn af sósunni í skál með hvítkálinu og blandið vel saman. Hinn helminginn af sósunni notum við til að toppa tacos-ið á eftir.

2. Setjið rækjurnar í skál með kryddblöndunni og blandið vel saman. Steikið þær á vel heitri pönnu í um 5-8 mín, og snúið þeim reglulega.

Raðið í tacos-ið: Stappað avocado, hvítkálið og rækjurnar. Toppið með fetaosti, lime, kóríander og meiri sósu.

Auglýsing

læk

Instagram