today-is-a-good-day

Súkkulaði smákökur með tvöföldu súkkulaði

Hráefni:

  • 2 dl kalt smjör skorið í litla teninga
  • 2 dl púðursykur
  • 1 dl sykur
  • 2 Egg
  • 1 1/2 dl kakó
  • 4 dl hveiti
  • 1 tsk maíssterkja
  • 3/4 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt
  • 3 dl sökkt súkkulaði saxað niður

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 190 gráður og setjið bökunarpappír á ofnplötu. Þeytið saman í skál, smjörið og sykurinn(púður og venjulegan) þar til þetta verður létt og “fluffy” eða í um 4 mín. Stillið síðan á lægstu stillingu og blandið eggjunum, einu í einu og hrærið vel á milli.

2. Blandið næst kakói, hveiti, maíssterkju, matarsóda og salti og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Hrærið þá saxaða súkkulaðinu saman við.

3. Kælið deigið í 15 mín.

4. Búið síðan til litlar kúlur úr deiginu og raðið á ofnplötu. Þrýstið síðan létt á hverja kúlu. Bakið í 9-11 mín. Leyfið þeim síðan að standa í um 10-15 mín eftir að þær koma úr ofninum.

Auglýsing

læk

Instagram