Langbesta sveppasúpan! Fullkomin á köldum haustdögum..

Hráefni:

  •  1 pakki sveppir
  • 1 pakki kastaníusveppir
  • 3 dl saxaður laukur
  •  1 tsk þurrkað timjan
  • 1 tsk sveppakraftur
  •  2 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  •  6 dl kjúklingasoð
  •  2 msk sojasósa
  •  3 msk hveiti
  •  1 msk paprika
  • 1 msk sítrónusafi
  • 1 msk söxuð steinselja
  •  2 1/2 dl rjómi
  •  1 dl sýrður rjómi
  • 4 msk smjör

Aðferð:

1. Takið stóran pott og steikið sveppina og laukinn upp úr smjöri. Kryddið þetta til með timjan og papriku. Steikið þetta í um 7-10 mín. Setjið hvítlaukinn og sveppakraftinn saman við síðustu 30 sekúndurnar.

2. Hrærið næst kjúklingasoð, sojasósu og sítrónusafa saman við og náið upp suðu. Leyfið þessu að malla í 5 mín. Pískið rjóma og hveiti saman í skál og hellið í súpuna. Hrærið stanslaust í þessu á meðan. Látið þetta malla í um 8-10 mín.

3. Takið súpuna af hitanum og hrærið sýrða rjómanum saman við. Toppið með saxaðri steinselju og berið fram strax.

Auglýsing

læk

Instagram