3 einföld skref til þess að öðlast Instagram FRÆGÐ strax í dag!

Instagram er upphaflega hugsað sem app til að deila skemmtilegum myndum með vinum sínum – en fljótlega þróaðist það út í að allir urðu ljósmyndarar.

Fólk deildi myndum af matnum sínum, skellti filter á þær og líf þeirra virtist fullkomið.

Módelin mættu fljótlega á svæðið og fóru að raka inn pening með því að smella af myndum af sér í fötum eða með skartgripi og framleiðendurnir fóru að borga þeim háar fjárhæðir fyrir faldar auglýsingar.

Sjana Earp er aðeins 21 árs og hefur náð sér í milljón fylgjendur á Instagram. Á bloggsíðunni sinni deildi hún þeim einföldu trikkum sem til þarf að öðlast frægð á Instagram.

Hún byrjar á því að segja að fólk þurfi að hafa það á hreinu að þessir fylgjendur eru ekki raunverulegir vinir og fólk ætti ekki að rugla saman vinsældum á Instagram við vinsældir í raunverulega lífi sínu.

1. Veldu þér þema – Ákveddu hvaða skilaboðum þú vilt koma á framfæri á þínum Instagram reikningi, hvað er það sem þú vilt vera þekkt/-ur fyrir og haltu þig á þeirri braut.

2. Póstaðu myndum reglulega og haltu þig við þemað sem þú valdir þér.

3. Notaðu krafta þína til góðs og ekki haga þér eins og þú sért í samkeppni við aðra á Instagram.

Sjana segir jafnframt að sér hafi boðist að auglýsa ýmsa hluti og vörur sem hún hafi hafnað vegna þess að hún trúi ekki eða hafi ekki áhuga á þeim. Hún bætir því við að Róm hafi ekki verið byggð á einum degi og það taki tíma að koma sér upp mörgum fylgjendum. Hægt sé að kaupa sér þá, en hún mælir ekki með því.

Þá er bara að skella sér á Instagram!

Auglýsing

læk

Instagram