Hann Aron Freyr Ólason deildi þessari færslu á Facebook eftir að hann komst að því að hann og vinir hans myndu ekki fá að útskrifast um jólin frá Verkmenntaskólanum á Akureyri – eins og þeim hafði verið lofað.
Menntamálaráðuneytið ákvað á síðustu stundu að breyta námsskránni og setti framtíðarplön þeirra alla úr skorðum. Aron er eðlilega ekki sáttur:
,,Ég og þessir drengir hér erum allir á málmiðnaðarbraut við Verkmenntaskólann á Akureyri við erum þrettán talsins og erum við stærsti hópur málmiðnaðarnema á landinu. Við erum hverjir mjög áhugasamir um okkar nám og margir mjög klárir og tilbúnir að takast á við lífið eftir skóla og að ná að klára þetta nám. Fyrir áramót var okkur öllum sagt útskrift væri á boðstólnum núna um jól 2018 og við þær fregnir erum við búnir að segja fjöldskyldum og vinum frá þessum fréttum og margir af okkur farnir að gera áætlanir fyrir sín frammtíðarstörf og jafnvel einhverjir að fara í áframhaldandi nám annarsstaðar.
Um miðja þessa önn fengum við þær ömurlegu fréttir að útskrift væri allt í einu ekki á boðstólnum jólin 2018 vegna nýrra námsskráar sem kom inn eftir áramótin frá menntamálaráðuneytinu. Og það hljómar svona að nemandi sem á meira en 3 mánuði eftir af sínum námssamningi fær ekki að koma inná lokaönn. Þetta var ekki svona fyrir ári síðan, þetta er dálítið högg fyrir okkur þar sem við erum 6 talsins sem erum búnir með samning en sumir ekki sem segir okkur það að við sem erum 6 getum ekki einu sinni farið á lokaönn vegna þess að skólin hefur ekki fjármuni til að halda uppi kennslu fyrir svo fáa nemendur á þeirri önn en við höfum fengið að heyra það að talan sé svona um 10 manns og yfir til að hægt sé að halda brautinni gangangi…
Þetta þýðir það að útskrift er ekki í boði fyrr en eftir ár og sveinsprófið hjá sumum okkar mun þá dragast um líklega ár í viðbót. Er þetta eitthvað grín? Það má líka bæta inní þetta að við iðnnemar sem fengum þessa nýju námsskrá í andlitið þurftum að fylgja henni strax og fáum við þá ekki að klára á þeirri gömlu en allir sem eru á bóklegum brautum mega klára bara á sinni gömlu námsskrá og útskrifast með engum hömlum… Það eru mörg svona dæmi að iðnnemar hafa þurf að bíða hátt í 3 ár eftir að fá að útskrifast vegna þess að skólin á ekki fjármagn til að halda uppi sumum brautum. Ég ætla að nefna hér píparastéttina og bifvélavirkja sem hafa mátt þola þetta sem mest. Afhverju er þá skólin að auglýsa þetta nám þeir geta ekki einu sinni lofað námslokum á ýmsum brautum, ekki stendur það í brautarlýsingunni…
Mikill skellur fyrir okkur sem vorum búnir að plana eins og ég nefndi áðan áframhaldandi námi og verkefnum á núverandi vinnustöðum. Þetta er nefnilega ekki bara tap fyrir okkur heldur okkar vinnuveitendur líka því það er dýrt fyrir fyrirtæki að hafa menn í vinnu sem eru í námi . Við erum hverjir að halda uppi húsnæði,fjöldskyldu,bíl og öllu því sem fylgir,það er ekkert djók að vera í fullum skóla og vinna með því það ættu held ég andskoti margir námsmenn á íslandi að vita.
Menntakerfið er í molum hérna á íslandi og kannski sérstaklega iðnnámið þar sem gömul gildi eru löngu komin á tíma og gerðu það líklega fyrir 10 eða 15 árum síðan okkar nágrannaþjóðir í svíþjóð,danmerku og noregi eru komin svo langt á undan okkar í kerfisskipulagi í sambandi við iðnnám. Það er vontun á málmiðnaðarmönnum á íslandi og bara iðnaðarmönnum yfir höfuð og ef menntakerfið er að bregðast okkur svona ár eftir ár þá verður þetta nám ekkert spennandi og það vill þá engin leita í það og það verður halli á iðnaðarmönnum á íslandi eftir nokkur ár.
Ég gæti tuðað og tuðað um þetta á svo mörgum blaðsíðum að ég ákvað að leyfa ykkur að fá smá slepju af þessu. Ég vil hinsvegar þakka stuðninginn sem kom frá okkar fyrirtækjum og okkar stettjarfélögum en þau hafa gert hvað þau geta til að laga stöðuna því ekki gátu blessaðir excel sérfræðingarnir frá menntamálaráðuneytinu hjálpar okkur. Þetta virðist allt vera að renna í burtu frá okkur og þurfum við þá að bíða í hálft ár eða ár eftir útskrift og sveinsprófið eitthvað lengur.Ráðuneytið,menntakerfið og skóli eru að bregðast okkur. Ég ætla að vona að menntamálaráðherra fari nú að girða sig og geri eitthvað róttækt í þessum málum.“
