Hann Biggi lögga á ekki til orð yfir umbreytinguna á Jóa og Guggu og hrósar þeim hástert fyrir þá ótrúlegu umbreytingu sem hefur orðið á þeim – sem Biggi líkir við kraftaverk.
Einlæg og falleg Facebook færsla frá Bigga löggu sem gefur okkur öllum von um að það er aldrei of seint að snúa við og breyta lífi sínu.
Hrós dagsins fær maður sem fagnar sextíu ára stórafmæli í dag. Jóhann Traustason er maður sem ég hef fylgst með í mörg ár og það hefur kennt mér mjög margt. Það þekktu einusinni allir lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu Jóa og Guggu. Ekki vegna þess að þau voru einhverjir hættulegir glæpamenn, heldur vegna þess að þau voru verulega langt leiddir sprautufíklar sem voru oft í höndunum á okkur. Þau urðu líka landsþekkt þegar rætt var opinskátt við þau í sjónvarpinu um þeirra neyslu. Fólk ræddi það sín á milli að Jói og Gugga ættu nú sennilega ekki langt eftir. Örugglega bara einhverjar vikur eða mánuði. Það var ekki í myndinni hjá fólki að þau myndu nokkurn tímann ná sér á beinu brautina. Þau voru afskrifuð. Árið 2011 breyttist allt.
Fyrir nokkrum árum, man ekki nákvæmlega hvenær, var ég ræðumaður á samkomu hjá Samhjálp. Í dyrunum tók á móti mér þessi hávaxni, flotti, brosmildi og heilbrigði maður. Það tók mig smá stund að átta mig á því að þetta væri Jói. Þetta var í fyrsta skipti sem ég sá hann síðan ég hitti hann á vaktinni á götunni í mikilli neyslu. Þarna var hann ásamt Guggu sinni glaður og í flottu standi. Hvílíkt kraftaverk.
Jói og Gugga hafa nú verið edrú í meira en sjö og hálft ár! Þau eru gangandi kraftaverk og sýna okkur svo vel að það er aldrei í boði að afskrifa nokkurn mann, sama hversu langt leiddur hann er í fíkn. Þau hafa snert helvíti en komið til baka og sýnt okkur að það er allt hægt. Þau hafa líka sýnt okkur einstaka ást með því að hafa staðið við hlið hvors annars í gegnum allt. Alltaf jafn ástfangin og flott. Þau eru líka alltaf nefnd saman. Ef einhver spyr, hvaða Jói? Þá er svarið bara Jói og Gugga og svo öfugt.
Jói fær að sjálfsögðu extra stórt hrós vegna þess að hann er afmælisbarn dagsins en Gugga fær svo sannarlega að fljóta með. Þau eru bæði hetjur og frábærar fyrirmyndir. Til hamingju með daginn Jói og til hamingju með hinn helminginn Gugga!
#jólahrós2018
