Bíræfnir þjófar herja nú á skátana og gera þeim lífið leitt.
Þetta getur skaðað æskulýðsstarf skáta í landinu og skátarnir hafa því beðið fólk um að hafa augun opin og deila þessari færslu.
Stolið af skátum.
Um þessar mundir herja þjófar á söfnunarskápana okkar sem eru á grendarstöðvum út um allt höfuðborgarsvæðið. Þjófarnir eru vopnaðir öflugum tækjum og brjóta upp rammgerðar læsingar og láta greipar sópa. Þessi innbrot kosta okkur mikið í skemmdum á skápunum og einnig töpum við flöskum og dósum. Allur okkar hagnaður fer í að styðja við æskulýðsstarf í landinu þannig að hér er verið að ræna æsku þessa lands. Við viljum hvetja alla sem verða varir við aðila sem eru að brjótast inn í okkar söfnunarskápa að láta lögreglu vita. Þessu þarf að linna. Þú mátt gjarnan deila þessu.
