Bjarki Már fékk hræðilegar fréttir – En hugrekki hans gerir hann að fyrirmynd fyrir okkur öll! – MYNDIR

Bjarki Már og Ástrós Rut voru umtöluð í samfélaginu í fyrra þegar Ástrós setti þetta átakanlega og öfluga myndband á netið, sem hefur verið skoðað næstum 500.000 sinnum.

Nú var Bjarki að fá hræðilegar fréttir eftir 6 ára baráttu við krabbamein. En hvernig hann bregst við þeim fréttum og hugrekkið sem hann er að sýna, gerir Bjarka að sannkallaðri fyrirmynd fyrir okkur öll:

Kæra fjölskylda og vinir ❤

Það er víst kominn tími á smá pistil frá mér og gefa ykkur stöðuna á mér. Ég hef gert mig heimakominn á krabbameinsdeild Landspítalans síðustu tíu daga vegna mikilla bólgna og verkja í hausnum. Vegna þessa fór ég í ítarlega rannsókn á höfði og niðurstöðurnar voru þær að ný æxli hafa myndast í heilanum á mér. Það eru ekki bara æxli í sárinu heldur hafa myndast ný æxli bæði í höfuðleðri og í hnakka. Eftir að hafa rætt við mitt læknateymi fékk ég þær fréttir að ekki er lengur möguleiki á að skera meinin í burtu né geisla, útlitið er því ekki gott.

Ég hef lifað í sex ár frá greiningu, mér var aðeins gefin tvö. Það þýðir einfaldlega að ég gefst ekki upp og hugafarið hjálpar mér alltaf aftur uppá lappirnar. Þegar við Ástrós fengum þær fréttir að ég á aðeins nokkra mánuði eftir var það skiljanlega mikið áfall, Emma okkar verður tveggja mánaða á morgun og ég er ekki tilbúinn að gefast upp. Því fékk ég læknana mina til að brjóta aðeins heilann og reyna að finna leið til að láta mér líða betur og jafnvel reyna að lengja minn tíma sem ég á eftir. Við ákváðum að prófa lyf sem á að draga úr heilabólgum og verkjum og reyna nýja samblöndu af krabbameinslyfi sem hugsanlega gæti hægt á framgangi æxlanna og gefið mér aðeins meiri tíma með fólkinu sem ég elska.

Þó svo að þetta hafi slegið okkur fjölskylduna vel niður þá ætlum við ekki að láta það hafa afgerandi áhrif á okkur og okkar líf. Við höfum lifað með því hugarfari síðustu ár að lífið er til þess að njóta og við tökum bara einn dag í einu. Því ætlum við að halda áfram.

Ég lít til baka þessi 6 ár sem ég hef verið veikur með miklu stolti.. ég hef náð að upplifa ótrúlega mikið og náð að gera þá hluti sem mig hefur dreymt um. Eiga frábært líf með bestu konu í heimi og fá að giftast henni ❤ ferðast út um allt á frábæra staði þar sem brúðkaupsferðin stendur klárlega uppúr.
Svo eru litlu hlutirnir eins og að njóta góðra stunda með fjölskyldunni líka svo mikilvægir og ómetanlegir. Það stærsta sem ég hef afrekað er þó að fá hana Emmu mina í fangið og stofna þar með fjölskyldu en það hefur verið minn helsti draumur og er ég stoltur og þakklátur að hafa þær í lífi mínu. ❤

Það er engin spurning að næstu mánuðir eiga eftir að taka á, óvissan er mikil og þetta tekur á andlegu hliðina hjá allri fjölskyldunni. Eitt er þó víst að við fjölskyldan ætlum að gera allt sem við getum til þess að nýta þennan tíma okkar saman eins vel og hægt er og á besta mögulegan hátt. Njóta þess að vera saman og reyna að upplifa það sem okkur langar til að upplifa saman.

Það skiptir ekki máli hversu lengi þú lifir, heldur skiptir það máli hvernig þú lifir þínu lífi. Lífið er núna, lifðu því!

Ég vil þakka ykkur fyrir mikinn stuðning síðustu ár, það er ómetanlegt að eiga svona gott fólk í kringum sig. Takk fyrir að hugsa vel til mín, þið megið svo sannarlega halda því áfram og senda okkur jákvæða strauma og kraft. ❤

Ást og virðing,
Bjarki Már ❤

Auglýsing

læk

Instagram