Hún Dísa segir frá því í opna Facebook hópnum ‘Íbúasamtökin Betra Breiðholt’ að maður hafi brotist inn í Írabakkanum og reynt að lokka 9 ára dreng með sér niður í kjallara.
Málið vekur vægast sagt óhug og fólk veltir fyrir sér hvernig sé hægt að koma í veg fyrir að svona gerist aftur.
UPPFÆRT!!
Það kom upp úr kafinu að hann reyndi að lokka 9 ára gamlan dreng með sér niður í kjallara! Hann reyndi að opna dyrnar á íbúðinni á 1. hæð og þegar strákurinn kom til dyra, þá reyndi hann að lokka hann með sér burt.
*
Innbrot í Írabakka í nótt.
Maður á aldrinum 25-30 ára, með axlarsítt brúnt hár í tagli.
Hann rændi fullum svörtum ruslapoka af fötum og skildi síðan eftir eitthvað annað þýfi hérna í hjólageymslunni.
Endilega hafið samband ef þið sjáið þennan fatapoka, þau áttu að fara í sölu til styrktar Neistanum.
Svo skildi hann eftir eitthvað þýfi hér niðri í hjólageymslu svo þið sem saknið einhvers eftir nóttina, megið endilega hafa samband við mig.