Bresk kona segir að fríið hennar á Benidorm hafi verið eyðilagt út af því að það voru of margir Spánverjar – ekkert grín!

Hin 81 árs gamla Freda Jackson heimtar að fá endurgreitt að fullu fyrir ferð sína til Benidorm sem var víst „hörmung“.
„Vandamálið“ var að ferðaþjónustan setti hana á hótel með of mikið af Spánverjum sem gistu þar – og það endaði víst með því að hún grét út af eyðilagðri ferð.

Sem sagt þessi 81 árs amma vildi ekki þurfa upplifa heimafólk í dvöl sinni á Benidorm á Spáni – heldur bara hanga með túristum frá öðrum löndum, líklegast bara frá Englandi miðað við allt sem hún sagði.
En vonandi fær hún bara endurgreitt og getur farið þangað sem henni líður betur – lífið er of stutt til að hafa ekki gaman af því, sama hvaða skoðanir maður hefur og hvernig maður er innrættur.