Hún Margot Robbie skaust á stjörnuhimininn eftir leik sinn í myndinni Wolf of Wall Street og hefur síðan leikið í fleiri myndum en ég get talið.

Þessi eftirsótta leikkona stýrir hér snakkstríði milli Bretlands og Ástralíu á sama tíma og hún er spurð spjörunum úr. Margot heldur að sjálfsögðu með Ástralíu, enda fædd þar og uppalin.