Bruce Bogtrotter lítur ALLT öðruvísi út núna – Leikarinn er ekkert líkur sjálfum sér sem barni! – MYNDIR

Manst þú eftir Bruce Bogtrotter úr Matilda?

Auglýsing

Eitt frægasta og eftirminnilegasta atriðið úr þeirri mynd er svo sannarlega kökuatriðið með Bruce Bogtrotter og Internetið hefur miskunnarlaust notað þá senu í gríni og háði.

Myndin kom út árið 1996 og árið 2013 þá hittust leikararnir allir aftur og Bruce ákvað að endurleika atriðið – athugið hvort þið sjáið muninn:

Leikarinn sem lék Bruce lítur nefnilega allt öðruvísi út í dag – hann er bara ekkert líkur sjálfum sér sem barni.

Jimmy segir að það hafi tekið þrjár vikur að festa atriðið á filmu: „Ég þurfti að vera í sömu fötunum á hverjum degi og súkkulaðið var orðið fast og hart á skyrtunni minni. Það þurfti að mála súkkulaði á andlitið á mér, nákvæmlega eins og það leit út deginum áður, á hverjum degi. Ég fékk ógeð á súkkulaði í nokkrar vikur eftir það og áttaði mig þarna á því að það er ekki auðvelt að vera leikari.“

Mögulega hjálpaði þetta atriði honum Jimmy að gera þessa ótrúlegu breytingu og mögulega voru það breytingarnar á táningsárunum – en hvað sem það nákvæmlega var þá segjum við bara: Vel gert Jimmy!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing