Jæja, þá er loksins búið að dæma í máli mannsins sem stal og dreifði nektarmyndum af Jennifer Lawrence – þessum myndum sem enginn segist hafa séð, en margir virðast hafa skoðun á.

Maðurinn heitir George Garofano og er 26 ára gamall – og árið 2014 hakkaði hann sig inn á iCloud reikninga hjá meira en 200 manns, þar á meðal Jennifer Lawrence, Kirsten Dunst og Kate Upton.

Í kjölfarið dreifði hann öllum nektarmyndum sem hann fann á iCloud reikningunum um Internetið. Atvikið var kallað „The Fappening“.

Nú hefur hann verið dæmdur sekur og þarf að sitja í 8 mánuði í fangelsi fyrir atvikið og verður í 3 ár á skilorði í framhaldinu. Þrír félagar hans sem voru með honum í þessu, þurfa allir að sitja inni lengur en hann, á bilinu 9 til 18 mánuði.
Það eru rosalega skiptar skoðanir þegar kemur að dómnum – sumir eru á því að þeir fengu makleg málagjöld, aðrir eru á því að þetta sé rétt svo eins og að slá á hendina á þeim eftir það sem þeir gerðu, og sumir eru meira að segja á því að þetta ætti ekki að teljast lögbrot.
Hvað finnst ykkur?