Conor McGregor og Floyd Mayweather voru loksins í sama herbergi í gær þegar þeir tóku sinn fyrsta blaðamannafund. Höllin var full og það var erfitt að átta sig á því í byrjun hvort bardaginn væri að fara byrja eða hvort þetta væri bara blaðamannafundur.
Conor talaði um að hann væri kominn með sína eigin jakkafatalínu og að það stæði „Fuck You“ á þeim. Fólk hélt auðvitað að hann væri að grínast en svo þegar það var skoðað málið aðeins betur var hægt að sjá að Conor var í „Fuck You“ jakkafötum.