Demi Rose fékk mikla athygli í fyrra þegar rapparinn Tyga og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner tóku sér smá pásu. Á þeim tíma fór Tyga að vera með Demi og fannst fólki það sérstakt þar sem Kylie og Demi eru frekar líkar.
En Demi Rose er búin að fara frá 60 þúsund fylgjendum á Instagram og upp í 4.5 milljónir fylgjenda á aðeins einu ári. Hún skellti sér í myndartöku á ströndinni og deildi því með fylgjendum sínum.












