„Djöfull er ég búinn að fá nóg af þessum glórulausa hræðsluáróðri“ – Vilhjálmur lætur lobbíista forréttindahópanna heyra það!

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. Varaforseti ASÍ, er búinn að fá nóg af hræðsluáróðri frá lobbíistum forréttindahópanna.

Í þessari Facebook færslu leiðréttir hann rangfærslur, blekkingar og rógburð sem verkalýðsbaráttan verður nú fyrir.

Auglýsing

Fyrirgefið orðbragðið en djöfull er ég búinn að fá nóg af þessu glórulausa hræðsluóróðri frá þessu liði.

En í gær kom framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og sagði kröfugerðin okkar muni hækka laun um 85%. Ósvífin ríður ekki við einteyming hjá þessum snillingum og formaður fyrirtækja í ferðaþjónustu leppur vitleysuna upp frá SA og að ógleymdum stuttbuxna drengnum sem finnst flott að nudda sér utan í ríka og fræga fólkið með því að kalla forystumenn í verkalýðsfélögunum öllum illum nöfnum og er ég þar að tala um Hörð Ægisson leiðarhöfund Fréttablaðsins.

Þessu til viðbótar finnst mér grátbroslegt að lesa ummæli eftir fyrrverandi greiningarstjóra Kaupþings Ásgeir Jónssonar, en hann segir í fjölmiðlum orðrétt: „Vandséð að nokkur græði á vegferð verkalýðsforystunnar.“

Ég held að það sé best að fyrrverandi greiningarstjóri Kaupþing sé ekkert að tjá sig um kjarabaráttu verkafólks, því eitt er víst að íslenskt verkafólk græddi ekkert annað skuldir og gjaldþrot og mannlega harmleiki vegna þeirra vegferðar sem Kaupþing var á fyrir hrun og hans ábyrð í þeirri vegferð hlýtur að vera einhver sem greiningarstjóri bankans!

Hér fyrir neðan er tilboð sem við gerðum Samtökum atvinnulífsins og þeim er fullkunnugt um það tilboð, en það hljóðaði uppá að allir launamenn sem taka ekki laun eftir lágmarkslaunatöxtum fengju 30.000 krónur og þeir sem væru á lágmarkstöxtum fengju 37.500 þetta gerir á fyrsta ári 13,9% eins og sést í launatöflunni hér að neðan.

Í lok samningstímans eftir þrjú ár væru laun þeirra sem eru á launatöxtum búin að hækka um 3*37.500 krónur eða sem nemur 112.500 krónum á þremur árum sem gera 42% ekki 85% eins og þessir snillingar halda fram!

Munið að hræðsluóróðurinn, blekkingarnar og rógburðurinn er rétt að byrja en trúið mér ég er svo sannarlega tilbúinn í þennan slag því við verðum sem samfélag að lagfæra kjör þessa fólks þannig að það nái að framfleyta sér frá mánuði til mánaðar og halda mannlegri reisn!

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing