Það eru svo margir í heiminum sem líta upp til Steve Jobs eftir ævistarf hans – þess vegna er ævisaga Lisa Brennan-Jobs dóttur hans að sjokkera fólk alls staðar í heiminum.

Hvort sem að fólk lokaði eyrun fyrir því eða ekki, þá var fyrir löngu búið að staðfesta að Steve Jobs hegðaði sér oft eins og hálfviti. En í ævisögu hennar Lisu þá gengur hún enn lengra og segir að hann hafi verið grimmur og sannarlega vond manneskja.

Frásögn hennar staðfestir sögur margra starfsmanna og viðskiptafélaga Steve Jobs, sem hafa haldið fram að hann hafi verið dónalegur og ósvífinn.

Niðurstaða þeirra sem hafa nú þegar lesið bókina er að Steve Jobs var hræðileg manneskja.

Samkvæmt Lisu þá voru það eiginkona hans, samstarfsfélagar og vinir í bransanum sem gerðu honum kleift að hegða sér svona án afleiðinga, sem gerði lítið úr öllum sem reyndu að saka hann um ósanngirni og illsku.

Aðal umræðan nú er hvort að afrek hans vegi þyngra en grimmd hans, en það er víst að afrek hans fengu allavegana meiri athygli á meðan hann var á lífi – sem gerði það auðveldara fyrir hann að viðhalda þessari hegðun.

Þrátt fyrir að margir hafa nú þegar lesið bókina, þá kemur bókin ekki út fyrir almenning fyrr en 4. september. Það verður vægast sagt athyglisvert að sjá hvernig heimurinn bregst við þessum upplýsingum.