Paul Walker varð frægur fyrir hlutverk sitt í Fast And Furious myndunum. Paul lést árið 2013 í bílslysi og skildi eftir sig 15 ára stelpu sem heitir Meadow Walker.
Paul bjó ekki með barnsmóður sinni en hann var góður pabbi sem reyndi alltaf að vera með dóttir sína þegar hann var ekki í tökum. Ef að fólk horfir á gömul viðtöl af Paul þá heyrir það hann tala alltaf um litlu stelpuna sína.
En núna næstum fjórum árum eftir slysið er Meadow orðin fullorðin. Hún fékk útlitið frá pabba sínum og er núna orðin 19 ára módel. Meadow heldur uppi Instagram reikning og er þar með 56 þúsund fylgjendur.







