Eftir alvarlega HEILABLÆÐINGU segir TR henni að ,,fokka sér“ – Fimm manna fjölskylda gæti endað á götunni! – MYNDIR

Hún Konný Björk er alls ekki ánægð með hvernig Tryggingastofnun hefur komið fram við sig eftir að hún fékk alvarlega heilablæðingu. 

Hennar upplifun, og margra annarra sem hafa lesið færsluna hennar, er að TR hafi í raun bara sagt henni að fokka sér.

Auglýsing


Reykjavík 24.07.2018

Rotið heilbrigiskerfi! Sjúklingar á Íslandi, fokkið ykkur!

Í febrúar sl var sjuklingur staddur í sálfræðitíma í Heilsuborg þegar skyndilega er eins og flóðbylgja komi frá hnakka og fram í enni. Óbærilegur þrýstingur, höfuðkvalir svo miklar að sjúklingur fellur í gólf, mikil uppköst og gífurleg hræðsla tekur yfir. Þarna var æð að rofna í höfði sjúklings án fyrirvara. Þykir mikil mildi að vera á Heilsustofnun og kemst sjúklingur undir læknishendur á nokkrum mínútum, sannarlega “heppinin” með þar. Sama dag er reynd aðgerð með þræðingu í gegnum nára til að reyna að stöðva þessa blæðingu.

Ekki vill betur til en svo að blóðtappi fer af stað í heilanum sem neyðir færustu heilaskurðlækna landsins til að hætta við aðgerðina. Farið var yfir stöðuna með eiginmanni og systur sjúklings og þeim sýnd upptaka af þessari aðgerð, sést þar skyndilega að heili viðkomandi missir allan lit, þarna eru færustu heilaskurðlæknar landsins að stöðva blóðtappann og heilinn fær sinn eðlilega lit aftur. Aldeilis “heppnin”aftur með í för þarna. Nóttin er látin líða og hægt hefur á blæðingunni en samt ekki stöðvast. Til að stöðva hana þarf að saga sundur höfuðkúpu sjúklings í annari aðgerð. Aðgerðin tekst fullkomlega og lífi sjúklings líklega þyrmt þarna, ekki vegna hæfni skurðlæknanna heldur vegna “heppni” sjúklings.

Við taka vikur þar sem fyrst um sinn voru á gjörgæslu en síðar á almennri deild. Útskrift af spítala, þakklæti fyrir lífgjöfina og nú getur bataferlið hafist. Fyrst um sinn var það eina sem viðkomandi gat gert var að fara á klósettið, svo hugurinn sem nýlega hafði gengið í gegnum þessa raun var ekkert sérstaklega hjá Tryggingastofnun Ríkisins. Það voru fyrstu mistök sjúklingsins! Þessa stofnun þarf svo sannarlega að yfirfara og það strax. Eina sem sjúklingur á eftir núna er að rita þessa grein svo hugsanlega sé hægt að koma í veg fyrir að sjúklingar framtíðarinnar verði ekki fyrir álíka niðurlægingu og hreinlega mannvonsku að hálfu þessarar stofnunar. Síðan í apríl hefur sjúklingur ásamt 3 starfsmönnum innan heilbrigðiskerfisins, reynt að fullbúa skýrslur sem henta TR og ekki ennþá hlotið náð fyrir nefndarinnar augum.

Tryggingarstofnun telur að sjúklingur sem var með rofna æð í höfði, fær blóðtappa í heilann og söguð opin höfuðkúpa til að bjarga lífi sjúklings sé ekki næg ástæða til að fá tímabundnar örorkubætur, NEI sjúklingur hefur ekki fullreynt endurhæfingu.

Þetta eru svör TR við umsókn um tímabundnar, já tímabundnar örorkubætur. Sjúklingur skal drattast og finna sína endurhæfingu af sjálfsdáðum þó svo að læknir hafið vottað að það væri fullkomlega óraunhæft. Engu máli virðist skipta þarna hjá TR, eftir slíka raun að eftirmálar aðgerðanna séu ýmsir því fyrir utan að hafa verið nánast alveg rúmliggjandi fram á vor, fylgja skurði eyrna á milli bólgur og verkir. Engin tilfinning er efst í hvirfli, jafnvægistruflanir, svimi, ógleði, heyrnarleysi, máttleysi, þrekleysi, málstol, taugatruflanir, helti, tilfinningasveiflur og önnur lítil lúxusvandamál sem fylgja því að fá heilablæðingu af þessi tagi.

Skal sjúklingur engu að síður muna að það greinilega kostar að fá að vera svona rosalega “heppin”á Íslandi í dag. Enginn réttur til orörkubóta þann tíma sem það tekur að jafna sig eftir svo smávægilegar aðgerðir. Það er ekki eins og það sé það eftirsóknarverðasta hér á landi að þyggja þessar smánarlegu bætur sem öryrkjum er boðið upp á, heldur hlýtur það að vera réttur hvers sjúklings að njóta ef veikindi steðja að. NEI ekki þessi sjúklingur! Hann fær ekkert!

Áfallið sem slíkt, að verða svona veikur er alveg nóg eitt og sér og hver sem er, hlýtur að þurfa tíma til að fá að jafna sig, meðtaka að lífið var næstum búið TVISVAR.

Þessir undanförnu mánuðir hafa verið alveg nógu erfiðir svo að sjúklingur þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur í ofanálag því það munar 5 manna fjölskyldu alveg um að annar framfærsluaðilinn detti gjörsamlega út í fleiri fleiri mánuði. Eins og áður kom fram hafa 3 aðilar innan kerfisins unnið að þessu máli og hafa aldrei orðið vitni að öðru eins. Svo koma sömu svörin aftur og aftur hjá TR, endurhæfing ekki fullreynd!

Af hverju hikstar þetta svona? Hvað er svona erfitt að skilja? Er hin svokallaða úrskurðarnefnd TR ekki læknisfræðilega læs? Sjúklingur er ekki fær um endurhæfingu að svo stöddu PUNKTUR!

Nú tekur hinsvegar við kæruferli, sem tekur enn engri tíma og þýðir að sjúklingur heldur áfram að fá ekkert. 5 manna fjölskyldan endar svo bráðlega á götunni, svo áfram heldur sjúklingur að vera “heppin”, það er dásamlegt að fá að vera “heppnasti” sjúklingur á Íslandi árið 2018.

Mbk, Konný Björk “hin heppna” Viðarsdóttir 🙂

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing