Föstudaginn 6. apríl, á sjálfan BLÁA DAGINN, verða frábærir styrktartónleikar haldnir í Gamla Bíó kl. 20 (húsið opnar kl. 19) þar sem fram koma hvorki meira né minna en:
– Moses Hightower
– Snorri Helgason
– Hafdís Huld
– Birgir
– Ylja
– AmabAdamA
Kynnir verður Ævar Þór Benediktsson, leikari (og „vísindamaður“) – en hægt er að nálgast miða HÉR!
Miðaverð í stæði er 3.900 kr. en í sæti 4.900 kr. Allar tekjur af miðasölu renna óskiptar til málefnisins. Sé miðinn greiddur með Aur þá leggur Aur til 500 krónur aukalega í styrk til Blás apríls!
Komdu, njóttu og láttu gott af þér leiða!
Því lífið er blátt á mismunandi hátt! #blarapril
Athugið: Blár klæðnaður er mikils metinn (en ekki skilyrði).
BLÁR APRÍL – Styrktarfélag barna með einhverfu stendur að tónleikunum sem er liður í árlegu vitundar- og styrktarátaki fyrir einhverf börn sem er nú haldið í fimmta sinn. Öll starfsemi félagsins er í sjálfboðavinnu og rennur allur afrakstur átaksins til fræðslu um einhverfu. Undanfarin ár hefur styrktarfé t.d. verið nýtt til gerðar á barnvænum fræðslumyndum um einhverfu og til námskeiðahalda fyrir foreldra og aðstandendur einhverfra barna. Nánari upplýsingar á www.blarapril.is.
Vert er að þakka Egils Kristal, Aur, Midi.is og Gamla Bíó fyrir stuðninginn við framkvæmd tónleikanna og þá fá allir þeir frábæru flytjendur sem fram koma og gefa vinnuna sína sérstakar þakkir.