Hún Valgerður Matthíasdóttir skrifaði opna Facebook færslu sem hefur vakið mikla athygli.
Þar sagði hún frá því að kvikmyndaklipparinn Elísabet Ronaldsdóttir hefði fengið krabbamein við gerð Deadpool 2 – og að viðbrögð Ryan Reynolds hefðu komið henni vægast sagt á óvart.
Svo mögnuð saga sem sögð verður í Íslandi í dag á Stöð 2 næsta fimmtudag 7. febrúar! Einn flottasti kvikmyndaklippari í heimi Elísabet Ronaldsdóttir var tilnefnd til Eddie verðlaunanna í Ameríku fyrir myndina Deadpool 2 með Ryan Raynolds…En í miðri klippivinnu veiktist Elísabet af krabbameini og var nær dauða en lífi!….Og þá tók Hollywood stjarnan Ryan Raynolds og fleiri til sinna ráða og flugu með hana og komu henni í réttar læknishendur!…Og þeir bjuggu svo til sérstakt klippiherbergi fyrir hana því þeir vildu ekki missa hana frá klippivinnunni!…Mögnuð saga um ótrúlega flotta konu og töffara sem aldrei gefst upp og sem slegist er um í Hollywood!



