Ellert Grétarsson vakti athygli á mjög döprum atburði fyrir náttúru landsins – þegar hann kom að Eldvörp í dag. Erlend orkufyrirtæki ryðja sér leið í gegnum náttúruna fyrir gróða. Hann skrifar þetta við myndirnar sem hann tók:
Ósköp var nú dapurlegt að koma út í Eldvörp í dag og sjá að eyðilegging á þessari einstöku náttúruperlu er hafin í boði erlenda orkufyrirtækisins HS Orku og Grindavíkurbæjar.
Hér er horft yfir eitt borstæðið af þeim fimm sem fyrirhugað er að gera nánast ofan í gígaröðinni. Þarna er verið að slétta út nútímahraun á náttúruminjaskrá, sem á að njóta sérstakrar verndar, samkvæmt 37. grein laga um náttúruvernd.
Í umsögn Skipulagsstofnunar um matsskýrsluna vegna framkvæmdarinnar sagði m.a. að um væri að ræða „nokkuð umfangsmikið, óafturkræft rask á vel grónum, óröskuðum svæðum, m.a. mosagrónum nútímahraunum sem hafa ákveðna sérstöðu vegna fágætis á heimsvísu“.
Þá taldi Skipulagsstofnun að áhrif framkvæmdanna á jarðmyndanir svæðisins, þ.e. sjálfa gígaröðina yrði „talsvert neikvæð“.
Endilega deilið.

