Emily Ratajskowski og Amy Shumer voru handteknar í Washington DC þegar þær voru að mótmæla tilnefningu Brett Kavanaugh til hæstaréttardómara.

Alls voru 302 manneskjur handteknar, þar á meðal Amy og Emily – sem léku saman í nýju myndinni hennar Amy „I Feel Pretty“.

Það náðist meðal annars á myndband þegar Amy samþykkti að vera handtekin með Emily.
Það er óhætt að segja að þær hafi verið hylltar sem hetjur á samfélagasmiðlum fyrir mótmælin sín – og þær lofa að þær séu ekki hættar að leggja sitt af mörkum til að berjast gegn óréttlæti.


