,,Finnar furðulostnir yfir verðtryggingu og vaxtaþrældómi á Íslandi!“ – Sævar ber saman íbúðakaup Finna og Íslendinga!

Hann Sævar Finnbogason reyndi að útskýra íbúðakaup á Íslandi fyrir Juha vini sínum sem er Finni – en það gekk erfiðlega því hann trúði varla því sem Sævar hafði um málið að segja.

Sævar bar því saman íbúðakaup Finna og Íslendinga í þessari færslu – og munurinn er ískyggilegur:

Auglýsing

Finnar furðulostnir yfir verðtryggingu og vaxtaþrældómi á Íslandi!

Hér segir frá fyrstu íbúðakaupum Juha, sem er finnsku stjórnmálafræðingur.
Síðustu vikur hef ég dvalið í Finnlandi og hef oft verið spurður um lífskjör venjulegs fólks á Íslandi. Finnar hafa heyrt að þau séu enn betri en í Finnlandi. Ég hef svarað þessu þannig að þau eru almennt góð en verðlag er of hátt svara ég.
Það bregst ekki að þegar ég útskýri fyrir þeim að húsnæðisvextir séu 5,75%, sem er reyndar með lægsta móti á íslenskan mælikvarða, gapa þeir venjulega af undrun.

Þegar ég sagði Juha kollega mínum sem er einmitt nýbúin að kaupa sína fyrstu íbúð þessi gleðitíðindi, spurði hann með furðusvip „getur venjulegt fólk keypt sér húsnæði á þessum kjörum?“
„Nei, reyndar ekki“ svaraði ég, „en það eru líka í boði verðtryggð lán sem bera lægri vexti, aðeins 4,2% (fastir vextir hjá Íbúðalánasjóði)“
„Það eru nú samt háir vextir, og hvernig virkar þetta „Indexed to inflation?““
Allir sem hafa einhvern tíma reynt að útskýra þá snilld sem verðtryggingin er fyrir útlendingum taka strax eftir tvennu, furðusvipunum sem kemur á þá og að þeim virðist fyrirmunað að skilja hvernig þetta getur verið skynsamlegt eða réttlátt fyrirkomulag. Líklega þarf maður helst að vera íslenskur hagfræðingur eða fjármagnseigandi til þess, og Yuha er hvorugt.
„HA…þú borgar af láninu þínu í meira en 10 ár en skuldar samt meira en þegar þú tókst lánið, ertu ekki að grínast!“
Þar sem ég hef oft áður reynt að útskýra þessa sér-íslensku snilld fyrir útlendingum og hvernig þetta „meikar allt sens“ er ég farinn að nota dæmi sem ágætur hagfræðingur kenndi mér.
„já, en sko…ef þú lánar einhverjum innsiglaða brennivínsflösku (með vöxtum) viltu auðvitað fá flöskuna innsiglaða til baka og svo líka vextina auðvitað, annars hætta allir að lána brennivínsflöskur“ segi ég hróðugur.
„Íbúðarlán er svolítið annað en brennivínsflaska!“
„Já að vísu“ segi ég og get ekki lengur vikið mér undan því að ræða um tilurð vertryggingarinnar og af hverju hún er enn við líði.
„Þetta eru samt 4,2% raunvextir sem er ekkert annað en þrældómur, af hverju takið þið ekki upp evru þannig að það yrði samkeppni og fólk gæti tekið lán í erlendum bönkum?“ spyr hann.
Og hvað get ég sagt, ég reyndi að benda á að krónan hefði nú bjargað okkur eftir hrunið (en sleppi því auðvitað að benda á að hún hefði að vísu átt stórann þá í hruninu) og svo þætti okkur svo fjarskalega vænt um þetta sjálfstæðistákn okkar. Auk þess sé allt á heljarþröm í Evrulöndum eins og til að mynda Finnlandi, eins og hann hljóti nú að vita og það sé auðvitað Evrunni að kenna, ef marka má ESB andstæðinga á Íslandi.
Juha viðurkenndi að það væru ákveðnir erfiðleikar í efnahagslífinu en það sé ekki hægt að kenna evrunni einni um það, þvert á mót komi hún sér vel fyrir almenning og sérstaklega þegar kemur að aðgengi að húsnæðislánum á góðum kjörum.

Hann var sjálfur að festa kaup á sinni fyrstu íbúð. Það er rétt að taka fram að húsnæðismarkaðurinn er svolítið öðruvísi í Finnlandi. Þar er líka hægt að leigja á sanngjörnum kjörum og að Finnar búa almennt í aðeins minni íbúðum en aðrir Norðurlandabúar, en tekst samt alltaf einhvernvegin að vera með sánaklefa í íbúðinni eða að minnsta kosti í sameigninni
Íbúðin sem hann keypti (í Turku) er í nýstandsettri 30 ára gamalli blokk, 2 herbergja og 53 fermetrar ásamt rúmgóðri geymslu. Hann lét í leiðinni taka íbúðina sjálfa alveg í gegn.
Heildarverðið var 113.500 Evrur.
Lánið sem hann tók var 102.000 Evrur (12.6 millj). Vextir af láninu eru 0,8%
(vextirnir miðast við EURIbor vexti og eru endurskoðaðir reglulega og með 7% öryggisþaki)
Mánaðargreiðsla af láninu er 47.000 kall (380 Evrur í mán. 4).
Svo má til gaman geta þess að í Finnlandi er reynt að gera fólki auðveldara að eignast húsnæði fólk fær því líka vaxtabætur, sem eru skattaafsláttur sem getur verið allt að 30% af greiddum vöxtum, ef ég hef skilið þetta rétt, en þar sem vextir eru svo lágir munar ekki mikið um það. En þær hafa allavega ekki orðið til þess að hækka vexti eins og gjarnan er haldið fram á Íslandi.

Áður hafi Juha búið í leiguhúsnæði á stúdentagörðum en jafnvel þó að leigumarkaðurinn sé mun skárri í Finnlandi en á Íslandi gat Juha ekki hugsað sér að leigja að loknu námi. Hvers vegna að henda sambærilega upphæð í leigu og maður greiðir af húsnæðisláni? Þannig getur maður allavega leyft sér að hugsa í Finnlandi, þar sem Evra er gjaldmiðillinn og alvöru samkeppni á bankamarkaði.

Markmiðið ætti að vera að losna undan okrinu sem er í raun ekkert annað en þrældómur. Þar sem fjármagn er sogið út úr fjölskyldum sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið í vasa fjármagnseigenda. Og ef það þýðir að við þurfum að skipta um gjaldmiðil þá verðum við að gera það.

Eins og dæmin sanna eru hinir háu vextir á Íslandi eru ekki náttúrulögmál.

Myndin frá miðbæ Turku, Juha vildi síður að ég birti mynd af sér með frásögninni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing