Ef að þú hefur keypt Lego nýlega þá veistu að það vantar ekki hugmyndirnar hjá þeim þegar kemur að leiðum til að byggja hlutina – þetta getur verið svo skemmtilega flókið að það er æðislegt, sem útskýrir vinsældir Lego.
En nú hafa aðdáendur Lego bætt við „ólöglegum“ byggingarleiðum sem þau birta á netið í von um að auka enn frekar á ánægjuna hjá Meistara Byggingarfólki (e. Master Builders).




















