Vildi vera fín eins og Kylie Jenner – Varastækkun sem fór aldeilis úrskeiðis! – MYNDIR

Greyið Farrah Abraham! Fyrirmynd hennar er Kylie Jenner og hún vildi vera lík henni eins og hún er á myndinni hér fyrir ofan – en það fór því miður ekki vel.

Farrah er raunveruleikastjarna, tónlistarkona, klámstjarna og strippari. Hún er alin upp í Omaha, Nebraska en byrjaði feril sinn sem fegurðardrottning aðeins 16 ára.

Fyrrum raunveruleikastjarnan er nú aldeilis ekki ókunn fegurðaraðgerðum, en í þetta skiptið virðist hún hafa gengið aðeins of langt.

Hún ætlaði nýlega að hressa aðeins upp á varirnar sínar – eins og maður gerir – en aðgerðin fór hræðilega úrskeiðis.

Varirnar hennar eru eiginlega bara alveg eins og blaðra á 17. júní!

Sem betur fer er hún með húmor fyrir sjálfri sér og gerði grín að eigin óheppni á Twitter.

Hér er myndin af henni við hlið ‘Leelu’ úr þáttunum ‘Futurama’:

Þetta er allavegana pottþétt ekki útlitið sem hún sóttist eftir – svo mikið er víst!

Auglýsing

læk

Instagram