Krakkarnir í danstímanum hans Phil Wright buðu fjölskyldum sínum að koma í danstímann þeirra til að dansa með þeim – og það er óhætt að segja að foreldrarnir hafi komið krökkunum á óvart.
Þær voru alveg á því að mamma hefði sko engan takt – sú sýndi þeim.

Foreldrar hennar urðu skyndilega svalir þegar þau dönsuðu eins og atvinnumenn með henni – fyrir það voru þau sko „algjörir lúðar“.
Hér er myndband af foreldraheimsókninni, eitthvað sem á pottþétt eftir að fá þig til að brosa: