Arielle Musa fór á Tinder-deit með mjög geðgóðum ungum manni (að því er virðist vera).
Deitið fór þannig að hún svaf ekki hjá honum – en það fór greinilega ægilega í taugarnar á piltinum.
Hann brást við með því að hreyta í hana ýmis konar ónotum – og vilja fá endurgreiddan peninginn sem hann lagði í deitið.
Svona „eðlileg viðbrögð“ eins og maður segir.