Samfélagsmiðlastjarnan Naz Mila frá Aserbaídsjan ákvað að fá sér tattú um daginn og það endaði ekki vel.
Eins og þið sjáið þá setti hún textann: „I can judge a single god with my wrongs and wrongs“. Ef að þú skilur ekkert í því hvað hún er að reyna segja með þessu þá ert þú sko ekki ein/-n um það.
Naz ætlaði að fá sér frægan tyrkneskan frasa sem væri svona á ensku: „Only God can judge my mistakes and truths“ – en hún notaði þýðingarforrit sem hún fann á netinu, sem endaði svona.
Naz er ansi dugleg að setja inn djarfar myndir af sér á samfélagasmiðla – og eitthvað segir okkur að þangað til að hún komist í laseraðgerð til að láta fjarlægja tattúið, þá verði hún ansi vel klædd á þessu svæði í myndunum sem hún birtir.