Það væru eflaust margir til í að líta aðeins meira út eins og Jon Snow, enda vantar ekki myndarlegheitin í þann mann!
Josiah Martin er sagður svo líkur Jon Snow að kærastan hans kallar ófætt barn þeirra “baby Snow”. Josiah er á Twitter og Instagram undir notendanafninu facialfollicles og hóf nýlega að setja inn myndir af sér með hashtagginu “#jonsnowlookalike”
Og það var þá sem fjölmiðlar fundu hann.
Hann er með betri “doppelgangerum” Jons sem við höfum séð.

Svo elskar hann líka hunda …

Og kisur …

Og er að verða pabbi!

Það hljómar eins og líf hans sé töluvert betra en hjá Jon Snow.


