Söngkonan og rapparinn Nicki Minaj er ekki vön að láta lítið fyrir sér fara. Kræfur klæðnaður og tónlistarmyndbönd hafa verið daglegt brauð fyrir þessa stjörnu.
Nú var tískuvikan í París og mætti Nicki fersk á Haider Ackermann Autumn/Winter sýninguna. Nicki vakti mikla athygli með klæðaburði sínum eins og svo oft áður. Nicki var með annað brjóstið úti og með silfurlitaðan tígul yfir geirvörtunni sinni.