Disney lét fullt af draumum rætast síðastliðinn maí þegar tilkynnt var að pör gætu gift sig í töfrakonungsríki Walt Disney.
Núna hefur Disney þó ákveðið að auka enn frekar á ánægju þeirra sem eru í brúðkaupshugleiðingum og bjóða núna upp á að nota garðinn eftir lokunartíma. Semsagt hafa garðinn útaf fyrir sig í myrkrinu.
Einnig er hægt að kaupa auka þjónustu eins og að koma á svæðið í hestvagni, flugeldasýningu og fleira. Sannkallað konungsbrúðkaup !

Eftir að giftingin hefur átt sér stað er öllum gestum boðið til veislu í ævintýralandi, sem er annar hluti garðsins. Þessi herlegheit eru þó ekki ókeypis. En svona veisla kostar í kringum 20 milljónir króna. Nú er bara að byrja að spara!